Efist þú, þá skaltu bara prófa...Nóa !!!









Tunnan prentþjónusta

 

Hit Counter
Heimsóknir

 

Tippleikurinn ] Æfingatafla ] Póstur ] Bein Textalýsing ] Meistaraflokkur ] Nikulásarmótið ] Félagið ] Myndir ] Leikjanámskeið ] Leiftursævintýrið ]

07.03.10   Getraunir helgarinnar...
Þá hefur staðan í getraunaleiknum verið uppfærð. Skorið var frá 8 - 11 réttir endilega kíkið á stöðuna!
 
03.03.10   Feðgarnir halda dampi...
Óhætt er að segja að Feðgarnir fari gríðarlega sterkir inn í keppnina og eru efstir allra liða með 41 stig. Annars var skorið um síðustu helgi mjög gott ef frá er talið skussarnir í Kristbjörgu sem á einhvern ótrúlegan hátt tókst að fá aðeins 8 rétta!!! Gaman er svo að geta þess að Hafbliksmenn og konur fengu 13 rétta í gegnum getraunakerfi Leifturs og fengu 111.660 kr.
 
22.02.10  Úrslit helgarinnar komin á netið...
Já nú er búið að uppfæra stöðuna í leinum. Spennan í algleymi og gríðarlega jafnt í riðlunum. Mesta athygli hljóta Feðgarnir að fá en þetta er en eftir þrjár umferðir eru þeir með 30 stig og virka gríðarlega sterkir!
 
13.02.10 Getraunaleikurinn...
Já, nýr getraunaleikur hefur hafið göngu sína hér hjá okkur og er þátttaka eins og venjlega flott. Staðan hefur nú veirð uppfærð eftir aðra umferð.
 
22.12.09 Getraunir helgarinnar..!

Þá er Getraunaleik Leifturs fyrir árið 2009 lokið, Í fyrsta sæti í Meistaradeild var hópurinn Torres, í Öðru sæti var hópurinn Sturlaði Gæinn, og í því þriðja var hópurinn FC Egebjerg..!
Í Afturrúðubikarnum var það Subway sem tryggði sér fyrsta sætið, í öðru sæti voru Quiznos og Feðgarnir lentu í því þriðja.

Hægt er að sjá lokastöðuna með því að smella HÉR

Við óskum vinningshöfum til hamingju með sigurinn og verða vinningum keyrt til þeirra á morgun..! Þá viljum við þakka öllum þeim sem tóku þátt í leiknum og biðjum fólk um að vera á tánum eftir áramót þegar nýr leikur hefst...!

 

13.12.09 Getraunir helgarinnar..!
Nú eru úrslit helgarinnar í tippleiknum komin inn og hægt að sjá undir tippleikurinn og Meistaradeild/Afturrúðubikar
08.12.09 Meistaradeildin og Afturrúðubikarinn
Nú eru úrslit helgarinnar í tippleiknum komin inn og hægt að sjá undir tippleikurinn og Meistaradeild/Afturrúðubikar
02.12.09 Meistaradeildin og Afturrúðubikarinn
Þá er allt klárt fyrir áframhaldið. Búið er að telja útisigra, jafntefli og heimasigra til að skera úr um úrslitin. Í riðli 2 þurfti að kasta upp peningi milli Kristbjargar og Dodda Skó svo spennan er búin að vera gríðarleg. En nú er allt tilbúið og búið að setja inn liðin undir tippleikurinn hér fyrir ofan.
 
29.11.09 Getraunir helgarinnar...
Getraunir helgarinnar eru komnar inn á netið. Skorið þessa helgina var frá 6 réttum og allt upp í 10 rétta!!! Ljóst er að Fálkarnir, Sturlaði Gæinn og FC Egebjerg fara úr A-Riðli í Meistaradeildina , úr B-Riðli fara Millarnir og Geir og Grani áfram en eftir á að telja útisigra hjá þremur hópum um hver fylgir þeim áfram, og úr C-Riðli fara Torres og Thule-Group áfram en telja þarf útisigra hjá Vísurum og Matrix. Hin liðin fara svo í afturrúðu bikarinn.
 
28.11.09   Stórleikur, UNGIR - GAMLIR!!!
Í morgun áttust við í íþróttahúsinu á Ólafsfirði Ungir-Gamlir hjá meistaraflokki KS Leifturs (austurbær). Það er skemmst frá því að segja að ungir áttu aldrei breik í leiknum og voru yfirburðir Gömlu mannanna slíkir að hætt var að telja markamuninn á tímabili!!! Heiðar, Þorvaldur Sveinn, Albert og Viktor skipuðu lið meistaranna en ungu kjúllarnir voru Kristó, Ingimar, Kristófer og Halldór, þvílíkir skussar!!!!
 

Eldri fréttir










Reisum