1. Fullt Nafn?
Kristófer Númi Hlynsson
2. Eitthvað gælunafn?
Kristó
3.
Aldur?
Fæddur 21.feb 1991
4. Hvað eldaðir þú síðast?
Man það ekki alveg..!
5. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki?
Man það ekki, en mig minnir í æfingarleik gegn Þór
6. Staða á vellinum?
Hef verið að spila sem framherji núna, en tel mig líka geta leyst stöðu hægri kantmanns og hægri bakk
7.
Fyrri félög?
Engin
8. Uppáhalds númer á treyju?
Treyjunúmerið 16
9. Sætasti sigurinn?
Sigur í báðum leikjum gegn KS sumarið 2006 hehe :D
10. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?
Gabe
11. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Ætli það hafi ekki verið í leik gegn Völsungi í Powerade Bikarnum í vetur, en Raggi byrjaði á bekknum og skipti sér síðan inná um miðjan seinni hálfleik og eftir svona 3.mín labbar Raggi af velli með beint rautt spjald og stoppar hjá okkur brosandi á bekknum og segir ,,Þetta var stutt gaman’’ haha bara fyndið
12. Mestu vonbrigðin?
Fyrra sumar hjá okkur í 3.flokki höfðum aldrei verið með sterkari hóp en allt kom fyrir ekki.
13. Erfiðasti andstæðingurinn?
Er ekki viss margir mjög erfiðir, þá sérstaklega vinstri löppin :D14. Grófasti leikmaðurinn?
Heiðar nokkur Gunnólfsson :D haha
15. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki, ef já, hvernig þá?
Heyrðu nei
16.
Með hvaða liði
myndir þú aldrei
spila með?
Aldrei að segja aldrei en ef maður þyrfti að velja eitthvað lið þá yrði það væntanlega Dalvík
17.
Uppáhalds lið í
enska boltanum?
Rauðu Djöflarnir= Manchester United
18. Og að lokum, hvernig líst þér á lið KS/Leiftur fyrir komandi tímabil?
Ég held að þetta hafi aldrei litið svona vel út á þessum tímapunkti hópurinn næstum því orðinn tvöfaldur miðað við á sama tíma í fyrra sem er bara gott og vonandi fer fólk að mæta almennilega á völlinn í sumar, því þau geta vel orðið tólfti maðurinn í þessari miklu baráttu sem framundan er..!









.jpg)