Hit Counter
Heimsóknir

 

Tippleikurinn ] Æfingatafla ] Póstur ] Bein Textalýsing ] Meistaraflokkur ] Nikulásarmótið ] Félagið ] Myndir ] Leikjanámskeið ] Leiftursævintýrið ]
 

William Geir Þorsteinsson

1. Fullt Nafn?

William Geir Þorsteinsson

2. Eitthvað gælunafn?

Willi

3. Aldur?

Að verða 25, hálf fimmtugur Wink

4. Hvað eldaðir þú síðast?

Ég kann ekkert að elda en það hefur ábyggilega bara verið samloka með skinku og osti.

5. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki?

Ég held að ég hafi verið 15 ára og það var með Leiftri. Þetta var í deildarbikarnum og ég kom inná sem varamaður. Ég man að ég var örugglega 1.50 m á hæð og tók Heimi Guðjóns í skallaeinvígi.

6. Staða á vellinum?

Vinstri kantur.

7. Fyrri félög?

Leiftur, Leiftur/Dalvík og Fjarðabyggð.

8. Uppáhalds númer á treyju?

Treyjunúmerið 11

9. Sætasti sigurinn?

Þegar við urðum Íslandsmeistarar í 4.flokki karla.

10. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?

Það er mjög erfitt að segja við erum flest allir giftir Smile

11. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik?

Ég man ekki eftir neinu sérstöku enda mjög gleyminn.

12. Mestu vonbrigðin?

Þegar Leeds féll úr 1.deildinni.

13. Erfiðasti andstæðingurinn?

Enginn.

14. Grófasti leikmaðurinn?

Heiðar er snargeðveikur.

15. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki, ef já, hvernig þá?

Nei. ég get ekki sagt það.

16. Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með?

Liverpool!! Ógeðslegur klúbbur.

17. Uppáhalds lið í enska boltanum?

Leeds United  à www.leedsunited.com

18. Og að lokum, hvernig líst þér á lið KS/Leiftur fyrir komandi tímabil?

Þetta verður skemmtilegt sumar og það er mikið af fínum leikmönnum í liðinu. Við getum alveg gert góða hluti ef menn eru rétt stemmdir og tilbúnir að leggja sig 110% fram.

Áfram KS/Leiftur