1. Fullt Nafn?
Agnar Þór Sveinsson
2. Eitthvað gælunafn?
Aggi
3. Aldur?
31 árs (´76 módel)
4. Hvað eldaðir þú síðast?
Mjög flókinn pastarétt
5. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki?
Árið 1992 þá 15 að verða 16. Þetta var á Siglufjarðarvelli á móti Völsungi við unnum þann leik 3-2. Það sem er minnisstæðast við þennan leik að er að ég spilaði frammi með Habbó og skoraði mitt fyrsta mfl. mark eftir sendingu frá Habbó. Þjálfarinn var Júri Sedov.
6. Staða á vellinum?
Miðjumaður
7. Fyrri félög?
Tindastóll
8. Uppáhalds númer á treyju?
Treyjunúmerið 11.
9. Sætasti sigurinn?
KS/Leiftur-Völsungur í september í fyrra, þegar við tryggðum okkur sæti í 1. deildinni.
10. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?
Grétar Bragi
11. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Það er pottþétt í leik sem við spiluðum hérna heima. Við fengum aukaspyrnu á okkar vallarhelmingi og Brynjar Harðar tekur boltann og stillir honum upp. Sasa Durasovic kemur svo til að taka spyrnuna og þrumar aftan í hnakkann á Brynjari sem brást vinn versti við og sagði þessa fleygu setningu: “hvað er málið?” Þessi setning bergmálaði í Hólsdalnum og þetta atvik er til á myndbandi. Þetta var ótrúlega fyndið.
12. Mestu vonbrigðin?
Það var í úrslitakeppninni í gömlu 4. deildinni árið 1996 minnir mig. Við unnum Sindra hérna heima en töpuðum útileiknum (eftir mjög skrautlegt ferðalag) og komumst því ekki uppí 3. deild.
13. Erfiðasti andstæðingurinn?
Það er erfitt að nefna einhvern einn.
14. Grófasti leikmaðurinn?
Höddi Bjarna
15. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki, ef já, hvernig þá?
Ég hef verið í sömu sundskýlunni í mörg ár.
16. Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með?
Tindastól (aldrei að segja aldrei)
17. Uppáhalds lið í enska boltanum?
Liverpool
18. Og að lokum, hvernig líst þegar á lið KS/Leiftur fyrir komandi tímabil?
Mjög vel og hlakka mikið til sumarsins.
Að lokum þökkum við Agga kærlega fyrir þátttökuna, og óskum honum alls hins besta í baráttunni í 1. deild, á komandi sumri.