1. Fullt Nafn?

Gabríel Reynisson.

 

2. Eitthvað gælunafn? Gabríel_Reynisson

Maður heyrir oft Gabe og Gabbi.


3. Aldur?

17 ára.

 

4. Hvað eldaðir þú síðast?

Einhverskonar pylsu eða eitthvað.

 

5. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki?

Síðasta sumar á móti Magna. Kom inná þegar það voru einhverjar mínútur eftir, en ég verð nú lengi að gleyma þeim.

 

6. Staða á vellinum?

Raggi er gjarn á að henda mér út um allt :D


7. Fyrri félög?

Reynir Sandgerði

 

8. Uppáhalds númer á treyju?

Treyjunúmerið 3.

 

9. Sætasti sigurinn?

Mjög líklega síðasti leikurinn, á móti Völsungi. Það var nú helvíti sætt.

 

10. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?Mynd númer 109

Á ekki Grétar þetta?

 

11. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:

Þetta var ekki beint atvik, en þegar það rigndi heilu tonni á Siglufjarðarvöll. Menn fljúgandi á hausinn á 2 mín. fresti og alls konar hlutir voru í gangi. J

 

12. Mestu vonbrigðin?

Þegar Raggi skaut yfir í seinni leiknum á móti Selfossi. Á móti empty net. :D

 

13. Erfiðasti andstæðingurinn?

Aggi er ofarlega á þessum lista

 

14. Grófasti leikmaðurinn?

Naglinn hann Jói G J

 

15. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki, ef já, hvernig þá?

Nei, eiginlega ekki.


16. Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með?

Tindastól, jakk.


17. Uppáhalds lið í enska boltanum?

Eina liðið sem hægt er að horfa á, Tottenham!

 

18. Og að lokum, hvernig líst þegar á lið KS/Leiftur fyrir komandi tímabil?

Bara mjög vel, nýjir leikmenn að raðast inn í liðið og ég held að þetta eigi eftir að verða mjög svo eftirminnilegt sumar.