1. Fullt Nafn?

Grétar Bragi Hallgrímsson

 

2. Eitthvað gælunafn?

Gretsky, Mömmustrákurinn, kýs samt bara Grétar!


3. Aldur?

17 ára

 

4. Hvað eldaðir þú síðast? Grétar Bragi Hallgrímsson

Kjúkling og pasta held ég bara

 

5. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki?

Minn fyrsta meistaraflokksleik lék ég í Deildarbikarnum 2006 í 1-1 jafnteflisleik á móti Völsungi. Það sem ég man úr þeim leik er að ég var gjörsamlega að deyja úr stressi, en það reddaðist allt á þessum 10 mínútum sem að ég spilaði ;)

 

6. Staða á vellinum?

Hægri bakvörður eða hægri kantur.


7. Fyrri félög?

Uppalinn KS-ingur.

 

8. Uppáhalds númer á treyju?

Var ekki Habbó nr. 10 ?

 

9. Sætasti sigurinn?

Klárlega 3-0 sigurinn á Völsungi í fyrra þegar við tryggðum okkur upp í 1. deildina.

 

10. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?

Arnar Geir kemur sterkur inn ! :D

 

11. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:

Mér dettur nú bara í hug fyrsta meistaraflokksmarkið mitt. Það var á móti Hetti í Deildarbikarnum 2006, boltinn kemur út fyrir teiginn eftir hornspyrnu og þar mætti ég og smurði hann upp í skeytin fjær. Hef aldrei náð því aftur, ekki einu sinni á æfingum ! :D

 

12. Mestu vonbrigðin?

3. flokks sumarið 2006 ! Gekk ekki neitt !

 

13. Erfiðasti andstæðingurinn?

Klárlega ekki Sigurbjörn Hafþórsson allavegana ;)

 

14. Grófasti leikmaðurinn?

Ætli að sérsveitarmaðurinn fái ekki þann heiður ?

 

15. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki, ef já, hvernig þá?

Nei


16. Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með?

Tindastól !


17. Uppáhalds lið í enska boltanum?

Liverpool

 

18. Og að lokum, hvernig lýst þegar á lið KS/Leiftur fyrir komandi tímabil?

Mér lýst mjög vel á liðið fyrir komandi tímabil. Held að við verðum í harðri baráttu um að halda okkur í deildinni og tel ég að þegar uppi er staðið þá haldi KS/Leiftur sæti sínu í 1. deild.