1. Fullt Nafn?

Grétar Örn Sveinsson

2. Eitthvað gælunafn?Bræðurnir Sigurður Óli, Grétar Örn og Agnar Þór

Neibb ekki svo að ég viti

3. Aldur?

27 ára

4. Hvað eldaðir þú síðast?

Flottan hakkrétt

5. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki:

16 ára, man mjög litið eftir leiknum sjálfum nema að hann var spilaður á mölinni og ég ætlaði svo að sanna mig ég renndi mér í alla bolta eins og asni og er en að týna grjótin úr fótunum á mér

6. Staða á vellinum?

Vinstri miðja/

7. Fyrri félög?

Fram í 2flokk

8. Uppáhalds númer á treyju?

Treyjunúmerið 11

9. Sætasti sigurinn?

Var reyndar jafnteflið 1-1 á móti Víði 2004, þegar við unnum 2. deildina

10. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?

Gabríel

11. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:

Það sama og Aggi talaði um í sínu viðtali. (Það er pottþétt í leik sem við spiluðum hérna heima.  Við fengum aukaspyrnu á okkar vallarhelmingi og Brynjar Harðar tekur boltann og stillir honum upp.  Sasa Durasovic kemur svo til að taka spyrnuna og þrumar aftan í hnakkann á Brynjari sem brást vinn versti við og sagði þessa fleygu setningu:  "hvað er málið?"  Þessi setning bergmálaði í Hólsdalnum og þetta atvik er til á myndbandi.  Þetta var ótrúlega fyndið)

12. Mestu vonbrigðin?

Að falla í 2. deild 2005

13. Erfiðasti andstæðingurinn?

Enginn

14. Grófasti leikmaðurinn?

Höddi Bjarna

15. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki, ef já, hvernig þá?

Nei

16. Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með?

Víking Ólafsvík

17. Uppáhalds lið í enska boltanum?

Sjálfsögðu LEEDS

18. Og að lokum, hvernig líst þér á lið KS/Leiftur fyrir komandi tímabil?

Mér líst mjög vel á það