1. Fullt Nafn?
Halldór Logi Hilmarsson
2. Eitthvað gælunafn?
Raggi kallaði mig nú afi á tímabili en það var vonandi tímabundið.
3. Aldur?
Ég verð 17 ára, 7. maí
Eggjaköku með skinku og pepperoni
5. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki?
Ég var búinn að taka þátt í einhverjum æfingaleikjum en fyrsti alvöru leikurinn sem ég spilaði var á móti KA í Visa bikarnum 18. Maí 2006... Spilaði þá á hægri kantinum allan leikinn sem endaði 4-1 fyrir KA. Það var mjög spennandi að fá að spila svona ungur og gott að vita að menn treystu manni fyrir þessu.
6. Staða á vellinum?
Hef verið að spila á kantinum og á miðjunni uppá síðkastið
7. Fyrri félög?
KS
8. Uppáhalds númer á treyju?
Hún mun vera 8 þó að sú tala sé frekar hard to get ;)
9. Sætasti sigurinn?
Ætli það sé ekki bara þegar við komumst upp síðasta sumar
10. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?
Er ekki Grétar Bragi allur í höstlinu?
11. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Það var einstaklega skemmtilegt að sjá Guðjón skora í fyrrasumar. Þvílíku fögnin hafa sjaldan sést betri. Og það besta var að kallinn setti meira að segja tvö mörk þetta sumar :D
12. Mestu vonbrigðin?
Jafnteflið heima á móti ÍR síðasta sumar var mjög svekkjandi.
13. Erfiðasti andstæðingurinn?
Raggi og Aggi koma sterkir þar inn.
14. Grófasti leikmaðurinn?
Mér fannst nú helvíti gaman að sjá slæmu hliðina á Ragga þegar hann dúndraði í greyið strákinn hjá Völsungi í Powerade mótinu fyrr í vetur. En annars eiga Guðbrands bræðurnir til að vera helvíti grófir ;)
15. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki, ef já, hvernig þá?
Læt það bara duga að undirbúa mig nokkrum dögum fyrir. Engin hjátrú...
16. Með hvaða liði myndir
þú aldrei spila með?
Tindastól og Völsung
17. Uppáhalds lið í enska
boltanum?
Manchester United
18. Og að lokum, hvernig lýst þegar á lið KS/Leiftur fyrir komandi tímabil?
Mér lýst bara mjög vel á þetta. Margir nýjir leikmenn og vonandi náum við að samstilla hópinn fyrir sumarið.
