1. Fullt Nafn?

Heiðar Gunnólfsson

 

2. Eitthvað gælunafn? 

Heizzz eða Heiddi

Mynd númer 145
3. Aldur?

Fæddur 1979 Reiknaðu nú (29 ára) J

 

4. Hvað eldaðir þú síðast?

Tacó a la Heiddi

 

5. Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki?:

úfff það er svo langt síðan að ég man það ekki, ég var sennilega 15 ára og það var væntanlega einhver æfingaleikur

 

6. Staða á vellinum?

Er hörku senter en menn eru ekki að átta sig á þvi þannig að ég fæ að húka í vörninni !!


7. Fyrri félög?

Leiftur, KS, Fjölnir, Leiftur/Dalvík, og svo KS/Leiftur

 

8. Uppáhalds númer á treyju?

7 klikkar ekki

 

9. Sætasti sigurinn?

Það var mjög sætt að vinna völsung síðasta sumar sem tryggði okkur sæti í 1. deildinni og þeir sem þekkja mig vita að ég man ekki mikið lengra en 3 daga aftur í tímann !!!! en ég er að koma á óvart núna J

 

10. Hver er mesti höstlerinn í liðinu?

Æ gabbi hlýtur að vera að hösla á þessa ljósatíma sína hehe. Hann þarf að hafa mikið fyrir þessu !!

 

11. Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:

Eins og ég sagði áðan þá er minnið ekkert sérstakt.

 

12. Mestu vonbrigðin?

Það eru pínu vonbrigði að vera ekki með hæfileika til að spila í ensku úrvalsdeildinni J

 

13. Erfiðasti andstæðingurinn?

Hef ekki fundið hann ennþá.

 

14. Grófasti leikmaðurinn?

UUU veit ekki, einhvern tímann bar ég þennan titil sjálfur !! - en hef mikið róast síðustu árin !!

 

15. Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki, ef já, hvernig þá? 

Jamm en ég kýs að halda því fyrir mig J

 

16. Með hvaða liði myndir þú aldrei spila með?

Æ mig langar til að segja Dalvík en ég ætla ekki að nefna þá ! J


17. Uppáhalds lið í enska boltanum?

Man Utd

 

18. Og að lokum, hvernig líst þér á lið KS/Leiftur fyrir komandi tímabil?

Ég held að þetta sé farið að líta þokkalega út núna. Við erum búnir að vera að fá leikmenn til okkar undanfarið og vonum að þeir standi sig vel !! en stefnum  allavega á að vera ekki í ströggli í sumar.