Hit Counter
Heimsóknir

 

Tippleikurinn ] Æfingatafla ] Póstur ] Bein Textalýsing ] [ Meistaraflokkur ] Nikulásarmótið ] Félagið ] Myndir ] Leikjanámskeið ] Leiftursævintýrið ]

 

Fréttir af Meistaraflokknum

09.02.08 Drög að leikskipulagi í 1.deild karla 2008...                                    
Drög að leikjaniðurröðun 1. deild karla, hafa nú verið sett hér inná síðuna.

Dagsetningar eru birtar með en athuga ber að einungis er um drög að ræða. 

Hægt er að skoða niðurröðina með því að smella á "Meistarflokkur" hér til hliðar og velja leikjaniðuröðun 2008. 

IEH

09.02.08 Leikur á morgun...!                                      
Meistaraflokkur spilar sinn síðasta leik í powerade mótinu á morgun gegn grönnum okkar í dalvík/reyni og verður það athyglisverð viðureign en síðasti leikur milli þessara liða lauk með sigri Dalvík/reynis í deildarbikarnum í fyrra og ætla strákarnir okkar örugglega að hefna fyrir ófaranna frá því í síðasta leik gegn þeim. Lið KS/Leiftur situr sem fyrr í 3.sæti í powerademótinu og með sigri gæti liðið farið í fyrsta sætið en þá eiga Þórsara sem eru í fyrsta sæti leik inni gegn KA sem sitja í öðru sæti en sá leikur fer fram í næstu viku.
En við hvetjum sem flesta að leggja leið sína í bogann annað kvöld en leikurinn hefst kl 18:10
KNH
04.02.08 KS/Leiftur - Þór, umfjöllun                            
Þór - KS/Leiftur
1-0 markaskorara vantar
1-1 Grétar Sveinsson
2-1 Hreinn Hringsson
- Rautt: Sandor(KS/Leiftur),Ibra (þór)

Í gær áttust við inní boga KS/Leiftur og nágrannar okkar í Þór. Bæði lið verða í 1.deild í ár og mátti því búast við hörkuleik sem varð svo raunin.. KS/Leiftur tefldi fram ungum í bland við reynslu boltana eins og liðið hefur verið að gera á mótinu. Einn leikmaður var á reynslu hjá félaginu leikmaðurinn sem um er að ræða heitir Dida og kemur frá Bosníu leikmaðurinn spilaði sem sókanarmaður og þótti standa sig með ágætum en  hann getur einnig leyst af hægri og vinstri kannt. Dida kemur einnig til með að spila leikinn gegn Dalvík/Reyni næstkomandi sunnudag.

En þá að leiknum sjálfum:
Þórsarar byrjuðu betur og voru ákveðnari til að byrja með. Þeir komust yfir á 7undu mínútu með eftir hornspyrnu. En eftir það vöknuðu okkar menn sko heldur betur og fóru að halda boltanum vel á milli sín og voru með þó nokkra yfirburði í leiknum og áttu nokkur góð færi. Nú svo á 26 mínútu skora KS/Leiftur svo en þar var að verki Grétar Örn Sveinsson sem lauk góðri sókn með skoti í vinkilinn við markteginn eftir góðan samleik við Dida og Gabríel. KS/Leiftur héldu áfram að þjarma að Þórsurum sem vörðust af krafti. En á 43 mínútu skora Þórsararnir svo þvert gegn gangi leiknum eftir klaufagang í vörn okkar manna sem var reyndar utan kannski þetta að spila mjög vel.
En staðan í hálfleik 2-1 Þórsurum í vil.
 
Seinni hálfleikurinn var tíðindalítill, bæði lið fengu sín færi þó svo kannski Þórsararnir hafi verið meira með boltann. Bæði lið misstu svo leikmenn af velli þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum eftir einhver átök inni á vellinum.
En eftir ágætar tilraunir KS/Leifturs undir lokin héldu Þórsararnir út og niðurstaðan 2-1 tap.

Byrjunarliðið:
Markv. Þorri,
Vörn:Arnar,Heiðar,Sandor,Kristófer B.
Miðja: Gabríel,Jói Guðbrands,Aggi,Grétar(Halldór L.)
Sókn: Dida(Grétar) og Raggi(Óli)
Varamenn: Halldór,Ingimar,Kristófer,Grétar,Halldór Logi og Óli Guðbrands


IEH
04.02.08 KS/Leiftur dæmdur sigur á Tindastól..                                   
Mótsstjórn Powerademótsins hefur dæmt KS/Leiftri sigur gegn Tindastól í leik sem átti að fara fram þannMynd númer 113

Tindastóll mætti ekki til leiks og því var KS/Leiftri dæmdur 3-0 sigur. Hér að neðan má sjá yfirlýsingu frá mótstjórn.

Yfirlýsing frá mótsjórn:


Laugardaginn 27. janúar átti að fara fram leikur í Powerademótinu á milli Tindastóls og KS/Leifturs. Tindastólsmenn treystu sér ekki til að mæta í leikinn vegna veðurs. Siglfirðingar mættu þó á staðinn. Reynt hefur verið að finna nýjan leiktíma fyrir leikinn en ekki tekist vegna tímaleysis í Boganum og skipulags hjá viðkomandi liðum.

Mótsstjórn sér því ekki annan kost í stöðunni en að dæma KS/Leiftri sigur í viðkomandi leik með úrslitum 0-3. Byggist sá dómur á því að sannanlega var ekki ófært til Akureyrar þennan dag (t.a.m komu KS/Leiftur sömu leið).
(fengið lánað af fótbolti.net)
IEH