Tunnan prentþjónusta

 

Hit Counter
Heimsóknir

 

Tippleikurinn ] Æfingatafla ] Póstur ] Bein Textalýsing ] Meistaraflokkur ] Nikulásarmótið ] Félagið ] Myndir ] Leikjanámskeið ] [ Leiftursævintýrið ]

Hér koma inn ýmsa upplýsingar varðandi Leiftursævintýrið sem fram fer helgina 12-14 ágúst næstkomandi

Dagskrá Leiftursævintýrisins
14 og 15 ágúst

Föstudagurinn 14 ágúst.

Kl 16 Gönguferði í Fossdal og til baka, Farið frá Kleifum, (ca 1,5-2 tímar) Páll Guðmundsson leiðir hópinn, mjög falleg gönguleið.

Föstudagskvöld býður Höllinn upp á hlaðborð fiskur og kjötmeti og þar verður boðið upp á lifandi tónlist. Vinsamlega panta í síma 4664000

Laugardagur 15 ágúst.

Kl 11-13,00 Spilað golf á golfvellinum, þeir sem hafa ekki áhuga á golfi geta veitt silung í Ólafsfjarðarvatni.

Kl 13,15 verður boðið upp á kaffi og  vöflur í félagshúsi Leifturs sjálfsögðu frítt.

Kl 14,00 verður leikur á Ólafsfjarðarvelli KS/LeifturHamri. Í hálfleik taka gömlu góðu Leifturs snillingarnir vítaspyrnur á markverði Leifturs.

Kl 16,00  Leikur 2 X 20 mínótur (Sunnanmenn gegn Norðanmönnum)

Kl  18-20 Hótel Ólafsfjörður býður uppá hlaðborð fiskur og kjötmeti, þarf panta hjá Hótelinu sími 466-2400

Kl 20-24  Tjarnarborg Leiftursævintýrið í hnotskurn, rifjað upp tímabilið 1983-2000 (kostar ekkert inn) Leggjum áherslu hafa glens og gaman þegar fyrrum leikmenn Leifturs og stuðningmenn rifja upp góða tíma. Veislustjóri verður Friðrik Einarsson.  Haukur og Guðbjörn taka nokkur Leifturslög.

Kl 24-03  Verður dansleikur Hljómsveit Magnúsar Ólafssonar, ágæt hljómsveit, kostar  aðeins kr 1000.- á dansleikinn.

Mætum í fjörðinn 14-15 ágúst.

Við lofum góðu veðri ef það klikkar sem við trúum ekki þá mætum við  í góðu skapi og skemmtum okkur saman.

Viljum benda á tjaldstæði kosta ekkert.

 

--------------------------------------------------------------------------------

Helgin 14-15 ætla leikmenn- makar- stjórnarmenn- stuðningsmenn Leifturs að hittast í firðinum fagra Ólafsfirði og eiga saman góða helgi.
Dagskráin er í mótun en undirbúningsnefnd er að störfum og munum við setja dagskrána upp þegar hún liggur fyrir.
Það  verður margt í boði.  Páll Guðmundsson göngugarpur mun bjóða upp á ýmislegt. Stuttar gönguleiðir, golf, sjóstangaveiði.
Leiftur spilar leik á Ólafsfjarðarvelli laugardaginn 15 ágúst.  Þar verður gert eitthvað gaman með gömlu góðu Leiftursstjörnunum.
Á laugardagskvöldið hittast allir í Tjarnarborg kl 20-24 þar verður rifjað upp  Leifturs ævintýrið frá 1983-2000.
Slegið  á létta strengi  í máli og myndum.  Kostar ekkert inn.  Veislustjóri Friðrik Einarsson.
 

Eftir miðnæti verður hörku dansleikur frá kl 24-3.  Góð hljómsveit. Verð á dansleik aðeins kr 1000.-

Við lofum miklu fjöri enda ekki hægt annað þegar gömlu góðu stjörnunar mæta í fjörðinn.

Fyrir hönd undirbúningsnefndarinnar

Þorsteinn Þorvaldsson

 








Reisum